Hotel Royal Court Róm - hótel royal court - campus martius - hótel róm - róm hótel - hótel róm - gisting í róm - appian way - Events in rome
Hótel í Róm: hotel royal court roma official site hotel-in-rome-center:Favorite Language
en it de fr es pt rus rom hr arabic isl swe

Check Availability...........
DAY
... MONTH .............
NIGHTS
....... YEAR .. ..........
. ...........
cancel..............

  Hotel a roma:Home Page Hótel í Róm: Staðsetning Hótel í Róm: Luxury Hotels Hótel í Róm: Herbergin Rooms & Svitur Hótel í Róm: Sértilboð Hótel í Róm: aðstaða Hótel í Róm: Þjónusta Hótel í Róm: pantanir  

Hvort sem það átti fyrir Evrópu að liggja eða ekki, hvort sem það var viljandi eða ekki, þá verður þessi rómverska Evrópa til í Gallastríðunum, sem að þínum dómi er mjög mikilvægt skref vegna þess að með þeim hefjast landvinningar Rómverja í vestri.

Já, þar með er endanlega búið að klippa hinn keltneks-germanska heim í tvennt, og gerir Keltana að menningu sem er í jaðri hins latneska heims. Júlíus Sesar fylgir þeirri stefnu að deila og drottna, etja þjóðum saman. Í kjölfarið koma átta stanslaus stríð, heimsvaldastríð. Takítus rekur sögu stríðanna í Brittaníu og útskýrir rómversku heimsvaldastefnuna á mjög sannfærandi hátt. Í sama streng tekur Salluste í Sögum, aðalverki sínu, sem er því miður að mestu leyti glatað... Hernaðarþátturinn var grundvallaratriði: Rómverjar bjuggu yfir afar háþróaðri hernaðatækni sem- og þannig er það ævinlega í mannkynssögunni – veitir ekki bara færi á að verða sigurvegari, heldu líka siðvæðari. Það eru svo síðari tíma menn sem réttlæta það ofbeldi sem landvinningamenn höfðu beitt.

Í þessu sambandi notar þú hugtakið „svarta bók Gallastríðanna“ og þú minnist á þjóðarmorð 1,2 milljóna fórnarlamba, sem er gríðamikið fyrir styrjöld sem er háð svona í návígi ... Þetta er langt frá þeirri helgimynd sem Sesar dregur upp af sjálfum sér í Gallastríðunum.

Já. Plinius gamli, sem nefnir þessa tölu í Náttúrsögu sinni, bætir við: “Ég get ekki nefnt sem afrek í þessu sambandi voðalega gjörð gegn mannkyninu sem þessa.” Plútark talar um eina milljón fórnarlamba og eina milljón fanga. Talið er að þriðjungi Galla hafi verið útrýmt, sem veitir manni leyfi til að nota orðið “þjóðarmorð”. Appien ræðir um að 400.000 manns hafi fallið einungis í herferðinni gegn Úsipetum og Tenkterum árið 55 f. Kr.  í Xanten, milli Mósel og Rínar, boðaði Sesar til friðarfundar með germönsku höfðingjunum, handtók þá og sendi svo hersveitir sínar til að brytja karla, konur og börn í spað. Þjóðinni var algerlega útrýmt. Þessi hryllingur varð til þess að Kató mótmælti í Róm – ekki af mannúðarástæðum, heldur af pólitístkum ástæðum – en þrátt fyrir það klappaði öldungadeildin í Róm Sesari lof í lófa. Hann lýsti raunar blóðbaðinu, til dæmis hvernig Belgar voru strádrepnir, með þessum einföldu orðum: “Þannig var það, að menn okkar drápu eins mikið og þeir gátu á dag án þess að lenda í hættu.” Það var á þennan hátt, með ofbeldi og þjóðarmorðum, sem Gallía og keltneski heimurinn voru innlimuð í „rómverska menningarheiminn“.

Hver er skýringin á þessari ótrúlegu villimennsku?

Fyrirmyndin að þessari herferð er þrælastríðið, sem er miðlægt í sögu rómverska lýðveldisins. Þegar þrælarnir gerðu uppreisn, voru þeir hakkaðir gersamlega í spað. Slíkt gerðist á Sikiley, upp frá árinu 135 f. Kr., þar sem hrikaleg fjöldamorð voru framin, og sama var að segja um uppreisnina frægu sem Spartakus leiddi frá 72 til 71 f. Kr. og endaði með því að þúsundir þræla voru krossfestir meðfram via Appia. Þetta var fyrirmyndin: leggja andstæðinginn algerlega í rúst. Réttlætingin byggðist á afar frumstæðu kynþáttahatri: það var ekki litið á þræla sem menn.  Sama gilti um aðrar þjóðir. Það var óhugsandi að Barbarar gætu borið skynbragð á fyrirbæri eins og heiður og trúmennsku. Það sama gildi um spænsku conquistadorana, þeim fannst óhugsandi að indíánar gætu verið með sál. Það var því eðlilegt að útrýma þeim, einkum vegna þess að þannig auðgaðist rómverska heimsveldið enn meir.


Uppgötvaðu perlur Rómar 1-2-3-4-5-6-7-8-9-10-11-12

Hotel a roma:Termini Station
  Hótel í Róm: skilmálar Hótel í Róm: inn group Hótel í Róm: atvinnumöguleikar Hótel í Róm: contact hotel royal court Hotel a roma:Book your room now Hótel í Róm: Sértilboð Hótel í Róm:Hvað er að gerast í Róm Hótel í Róm: trúnaðarstefna
  Official Site                                           Powered By: My web Side My Web Side- web in tourism