Hotel Royal Court Róm - hótel royal court - piazza della minerva - hótel róm - róm hótel - hótel róm - gisting í róm - monument by bernini - Events in rome
Hótel í Róm: hotel royal court roma official site hotel-in-rome-center:Favorite Language
en it de fr es pt rus rom hr arabic isl swe

Check Availability...........
DAY
..MONTH .............
NIGHTS
..... YEAR .. ..........
. ...........
cancel..............

  Hotel a roma:Home Page Hótel í Róm: Staðsetning Hótel í Róm: Luxury Hotels Hótel í Róm: Herbergin Rooms & Svitur Hótel í Róm: Sértilboð Hótel í Róm: aðstaða Hótel í Róm: Þjónusta Hótel í Róm: pantanir  

Á hvaða hátt?

Ég er viss um að það voru þessi gríðarlegu rán, þessi algera upptaka auðæva landanna sem þeir lögðu undir sig,
þessar milljónir gulltonna sem farið var með til Rómar, sem gerðu rómverska heimsveldinu kleift að vara svona lengi
og ná því að verða svona víðfemt. Rómverska hagkerfið var því grundvallað á skefjalausu arðráni sem fólst
í því að strádrepa anstæðingana eða undiroka þá og ræna þá algerlega inn að skinni.


Þú kallar Sesar “lýðræðislegan harðstjóra”. Orðið harðstjóri er skiljanlegt. En lýðræðislegur?

Orðið hafði ekki sömu þýðingu þá og nú er. Hvað þýðir lýðræði í borgríkjum til forna? Lýðræði er þýðing á gríska orðinu “demokratia”. Rómverjum fannst það neikvætt. Þegar þeir minnast á Aþenu, sjá þeir ekkert annað en alltof mikið frelsi. Hinir eiginlegu “rómversku borgarar”, það eru í rauninni aðalsmenn, sníkjustétt sem þrífst á gríðarlegum fjölda fólks sem ekki eru rómverskir borgarar. Sesar fer með persónuleg vald sitt eins og konungur, hann sækir vald sitt til hersins, en hann er ekki kosinn af þingmönnum.
Fyrirmynd hans er hið konunglega, goðumlíka vald hinna miklu einvalda austurlanda sem eru teknir í guðatölu
og hermenn hans eru hrifnari af því en gamla lýðveldinu með öllu sínu kosningastússi.
 
Þegar hann er einu sinni búinn að leggja Evrópu undir sig er þetta notað sem fyrirmynd. Stundum er sagt að sumar þjóðir, eins og Gallar hafi laðast að rómverskri menningu. Það er svona svipað því og að ímynda sér að Hitler hafi unnið stríðið og að síðan sé sagt að Evrópa hafi gjarnan viljað verða þýsk! Þessi hugmynd er ekkert annað er áróður sem seinna var tekinn upp af grískum höfundum sem voru að reyna að ganga í augun á Rómverjunum! Það eru ekki til neinar keltneskar heimildir frá þessum tíma ... Það var Simone Weil sem, í lok fjórða áratugarins, minnti í bók sinni, Hitler og utanríkismálastefna Rómverja, á það hversu mikla auðsveipni grísku höfundarnir sýndu í garð Rómar þegar þeir sögðu frá þessu tímabili.


Rómverjar beittu semsagt harðræði til að leggja önnur lönd undir sig?

Já, þeir byrja á því að berja niður alla andstöðu. Menn útrýma þjóðfélagshópum, síðan þegar andspyrnan minnkar veita menn yfirstéttinni mestu hugsanlegu forréttindi, rómverskan borgararétt. Mesta leyndarmál rómverskra yfirráða er að þeim tókst að vinna valdastéttina á sitt band. Takítus segir frá því hvernig Kládius keisari fer síðar meir framá það við öldungaráðið að það tæki höfðingja úr hópi Gaulverja í sinn hóp: “Grikkir höfðu ekki vit á að veita öðrum borgararétt, ef nokkrir smákóngar eru frátaldir. Þetta var það sem varð til þess að Aþena úrkynjaðist.” Borgararétturinn er semsagt notaður sem leið til að mynda einingu innan keisaraveldisins. Sesar er ekki að hugsa um eina og sameinaða Evrópu. Hugsun hans er sú að sterk Ítalía drottni yfir lendum sínum

Uppgötvaðu perlur Rómar 1-2-3-4-5-6-7-8-9-10-11-12

Hotel a roma:Termini Station
  Hótel í Róm: skilmálar Hótel í Róm: inn group Hótel í Róm: atvinnumöguleikar Hótel í Róm: contact hotel royal court Hotel a roma:Book your room now Hótel í Róm: Sértilboð Hótel í Róm:Hvað er að gerast í Róm Hótel í Róm: trúnaðarstefna
  Official Site                                           Powered By: My web Side My Web Side- web in tourism