Hotel Royal Court Róm - hótel royal court - discovering rome - hótel róm - róm hótel - hótel róm - gisting í róm - along the tiber - Events in rome
Hótel í Róm: hotel royal court roma official site hotel-in-rome-center:Favorite Language
en it de fr es pt rus rom hr arabic isl swe

Check Availability...........
DAY .....MONTH .............
NIGHTS
...... YEAR .. ..........
. ...........
cancel..............

  Hotel a roma:Home Page Hótel í Róm: Staðsetning Hótel í Róm: Luxury Hotels Hótel í Róm: Herbergin Rooms & Svitur Hótel í Róm: Sértilboð Hótel í Róm: aðstaða Hótel í Róm: Þjónusta Hótel í Róm: pantanir  

Brýrnar yfir Tíber
Ekki erfitt að ímynda sér að Tíberbrýrnar geymi marga söguna sem við ekki þekkjum, enda mikið vatn runnið til sjávar frá þeim tíma er sú elsta þeirra var byggð. Bygging brúar er að mörgu leyti táknrænni en venjuleg götulagning vegna þess að í henni felst samtenging landshluta sem ekki hafa áður átt saman að sælda. Við rennum með Tíber undir brýrnar frá norðri til suðurs.

Flaminióbrú (Ponte Flaminio) liggur nokkurn veginn norður - suður og um hana liggur hraðbrautin Corso Francia
og er því líka kölluð Franciabrú. Brúin er heljarmikil, byggð af Fasistum og ber þess merki; risastórar súlur til beggja
hliða hvorum meginn og fálkar á stöndum á brúnni sjálfri.

Milvióbrú (Ponte Milvio), eða Múlvíusarbrú, er þekktust fyrir það að við hana háðu keisaranir Konstantínus og Maxentíus sína lokaorustu. Og ekki bara þetta, heldur er brúin þekkt í Kristni fyrir það að nóttina fyrir orrustuna birtist Konstantínusi engill og boðaði honum að ef hann berðist fyrir krossinn þá myndi hann hafa sigur. Nú er haldinn stór markaður við brúna og á sumrin er fjörugt líf þar.
Framan við brúna er stórt torg, Piazzale Ponte Milvio.

Aostabrú (Ponte Duca d'Aosta) liggur framan við ítalíutorg (Foro Italia, áður Foro Mussolini) þar sem Ólympíuleikvangurinn er.

Risorgimentóbrú (Ponte Risorgimento) tengir vinstri bakkann, en nálægt stendur Villa Giulia,
við breiðgötuna Viale Giuseppe Mazzini sem liggur inn að Mazzinitorgi.

Matteottibrú (Ponte G. Matteotti) tengir saman Flaminioveg (nokkurn veginn) og Viale delle Milizie í Prati,
sem kennd er við skrifstofubyggingar hersins sem þar eru.

Nennibrú (Ponte P. Nenni) er göngubrú að ofanverðu, en á neðri hæðinni rennur metrólestin milli bæjarhlutanna.

Margrétarbrú(Ponte Regina Margherita) tengir saman Popolotorg á vinstri bakkanum og Rienzobraut (Via Cola di Rienzo í Prati á þeim hægri sem liggur alla leið að Risorgimentotorgið þar sem segja má að þrjú hverfi mætist; Vatíkanið, Borgo og Prati.

Kavúrbrú (Ponte Cavour) er kennd við ráðherra Viktors Emanúels konungs sem átti ríkan þátt í því að ítalía
náði að sameinast í eitt ríki á seinni hluta 19. aldar. Þessi brú er gengin þegar stefnan er tekin t.d. frá
Cavourtorgi við Palazzo di Giustizia á hægri bakkanum upp á Spánartorg.

Úmbertóbrú (Ponte Umberto I.) liggur hins vegar beint frá Hæstaréttarhöllinni yfir á vinstri
bakkann og ef haldið er áfram þá kemur fljótlega niður á Navónutorg.

Engilsbrú (Ponte Sant' Angelo; Brú Hadríanusar) Þessa brú byggði Hadríanus að grafhýsi
sínu handan Marsvalla, hét eftir honum, Aelíusarbrú, og var tekin í notkunn árið 134.

Sixtusarbrú (Ponte Sisto) lét Sixtus páfi (hinn sami og reisti samnefnda páfakapellu) byggja í tilefni Júbilársins 1475 og hefur varla verið vanþörf á. Hún er nú göngubrú og gott að fara hana á leið sinni milli Campo de' Fiori og Trastevere.

Garibaldibrú (Ponte Garibaldi) flytur helstu umferðina frá gamla bænum á Marsvöllum yfir í
Trastevere og um hana renna sporvagnarnir sem ferja fólk á milli Argentínutorgs og Trastevere.


Tíbereyja (Isola Tiberina) hefur frá fyrstu manna minnum verið að stórum hluta manngerð eyja.
Eyjan var mótuð sem skip á leið niður ána, en í stefninu stóð hof tileinkað lækningaguðinum Eskulapíusi (gr. Asklepíos).
Nú er þar spítali rekinn af munkum og á vel við. Út í eyjuna liggja tvær brýr, önnur þeirra elsta uppistandandi brú Rómar.


Það er Fabriciusarbrú (Ponte Fabricio, Pons Fabricius), byggð á síðustu dögum Lýðveldisskeiðsins, 62 f.Kr.,
og liggur norðan frá Gyðingahverfinu á Marsvöllum.

Emelíusarbrú/Brotnabrú (Ponte Rotto; brotna brúin, Pons Aemilius) gæti átt uppruna sinn allt aftur til 3. aldar f.Kr., en alla vega endurbyggð 179 - 142 f.Kr. Sumir segja að þessi brú hafi verið ónýt frá upphafi og allar tilraunir til að koma henni í nothæft ástand hafi mistekist. Það er vel skiljanlegt ef gaumur er gefinn að staðsetningu hennar í ánni, en hún stendur í miklum straumum.
Uppgötvaðu perlur Rómar 1-2-3-4-5-6-7-8-9-10-11-12
Hotel a roma:Termini Station
  Hótel í Róm: skilmálar Hótel í Róm: inn group Hótel í Róm: atvinnumöguleikar Hótel í Róm: contact hotel royal court Hotel a roma:Book your room now Hótel í Róm: Sértilboð Hótel í Róm:Hvað er að gerast í Róm Hótel í Róm: trúnaðarstefna
  Official Site                                           Powered By: My web Side My Web Side- web in tourism