Hasdrúbal var myrtur árið 221 f. Kr. Í hans stað var valinn Hannibal, sonur Hamilkars Barka. Hann var þá 25 ára. Bæði Pólybíus
og Livíus halda því fram að frá fyrsta degi hafi það verið ætlan hans að heyja stríð við Rómverja. Hannibal byrjaði á því að treysta
stöðu sína á Spáni. Brátt var allur Pýreneaskagi sunnan árinnar Ebró á valdi Karþagómanna með einni undantekningu því að borgin
Sagúntum hafði gert verndarsamning við Rómverja. Höfðu borgarbúar, sem töldu sér ógnað af Hannibal, sent mörg boð til Rómverja til
þess að vara þá við vaxandi veldi Karþagómanna á Spáni. Sagúntverjar tóku að hlutast til um málefni nágranna sinna í krafti bandalagsins
við Rómverja. Var Hannibal þá nóg boðið. Veturinn 220-219 f. Kr. dvaldi Hannibal með herliði sínu í Nýju Karþagó. Tók hann um
veturinn á móti sendinefnd frá Rómverjum sem sagði Hannibal að láta Sagúntum í friði og að fara ekki norður yfir ána Ebró. Hannibal
sagði þeim að hann væri að vernda hagsmuni Sagúntum fyrir Rómverjum. Fór sendinefndin aftur til Rómar og virtist þeim sem að stríð væri óumflýjanlegt.
Hannibal ákvað um vorið 219 f. Kr. að setjast um Sagúntum. Stóð umsátrið yfir í átta mánuði. Rómverjar hreyfðu hvorki legg né lið
til þess að hjálpa bandamanni sínum á meðan. Sendinefnd var að vísu send til Karþagó til þess að heimta að Hannibal yrði framseldur
til Rómverja og að Sagúntum yrði látin í friði. Þeim kröfum var hafnað. Eftir fall borgarinnar var önnur sendinefnd send til Karþagó.
Sendiboði Rómverja bauð Karþagómönnum stríð eða frið. Stríð varð fyrir valinu.